Upplifðu Hvammsvík hvar sem er

Vörurnar okkar eru skapaðar með tæra náttúru Hvammsvíkur í huga og jurtum sem vaxa allt umhverfis okkur á landi Hvammsvíkur.

Hvammsvíkurilmurinn fangar heimsókn í Hvammsvík. Heimsókn sem þú getur endurtekið aftur og aftur í gegnum skilningarvitin, hvar sem þú ert í veröldinni. Ilmkjarnaolíurnar í vörunum eru framleiddar úr jurtum sem vaxa villtar í Hvammsvík. Hvammsvíkurvörurnar eru án skaðlegrar innihaldsefna.

Framleitt á Íslandi með handtíndum jurtum

Hvammsvíkurilmurinn er hreinn og náttúrulegur sumarilmur, verkaður úr jurtum sem vaxa villtar í náttúrunni í kringum Hvammsvík. Ilmurinn er tær, ferskur og innblásinn af ótaminni náttúru Hvalfjarðarins.

Ilmurinn inniheldur bóluþang, krækiberjalyng, krækiber, melgresi, mosa og lerki.

Hvammsvíkurilmurinn

Ilmurinn fangar andartak í Hvammsvík. Afslöppun í heitri laug við strendur Atlantshafsins í fjallasal, umkringd svartri fjöru sem liggur í letilegum faðmlögum við móann. Það er hálfskýjað og það liggur rigningarúði í loftinu. Þú hlustar á hrynjandanna í öldunum og kvakið í fuglunum og þú verður eitt með náttúrunni. Ilmurinn fangaður úr villtum jurtum með eimaðferð Sonju Bent.

Sendum um allan heim

Þú getur keypt vörurnar í Sjóböðunum í Hvammsvík en einnig sendum við í Droppbox um allt land með með pósti um allan heim.